Blaklið KMK

Konur með knött

16.05.2009 01:14:29 / kmk

Lokahófið - BREYTT DAGSETNING


Lokahófið okkar verður sunnudaginn 31. maí (annar í hvítasunnu er daginn eftir)


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2009 11:32:26 / kmk

Lokahóf

Það mun von bráðar birtast ferðasaga frá Öldungamótinu hér á blogginu...má alls ekki missa af henni:haha:

Æfingum er lokið hjá okkur á þessu tímabili en við munum hittast á Miklatúni einu sinni í viku í allt sumar. Nánar um það síðar.

Lokahóf blakliðsins verður væntanlega laugardaginn 30. maí og munum við þá skemmta okkur vel saman og rifja upp takta vetrarins eins og okkur er einum lagið8)



» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2009 10:48:17 / kmk

Æfingaleikur við Fylki

Við heimsækjum Fylkisstelpur heim í kvöld og spilum við þær æfingaleik. Hann hefst kl. 19:00 og er í Árbæjarskóla.

Mætum tímanlega og tökum vel á því. Þjálfarínan verður afsökuð í kvöld. Þær sem mæta eru: Gunnhildur, Heiða, Hrafnlaug, Bára, Bogga, Fríða, Björg og Stína.


Sjáumst á Öldó8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2009 10:14:42 / kmk

Æfingaleikur - engin æfing

Best að minna á æfingaleikinn á Álftanesi í kvöld - kl. 20:50-22:30

Það verður því engin æfing í Árbænum í þessari viku.

Þjálfarína

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2009 08:34:55 / kmk

Leikjaplan

Leikjaplanið fyrir Fylkismótið er tilbúið. Við spilum eftir hádegi:

chemas-microsoft-com:xslt" xmlns:user="urn:blak.is">
TímiDeildLið ALið BUmsjónVöllurÚrslit
Laugardagur 18. apríl 2009
13:10 3. Kvk Afturelding-4 KMK Álftanes C (3. Kvk) Völlur 4
13:45 3. Kvk KMK Lansinn b Afturelding (1. Kvk) Völlur 3
14:55 3. Kvk KMK Álftanes C Lansinn b (3. Kvk) Völlur 3
15:30 3. Kvk Víkingur R KMK Álftanes C (3. Kvk) Völlur 3
16:40 3. Kvk KMK Fylkir C Lansinn b (3. Kvk) Völlur 3

Umsjónarleikir kl. 14:20 og 16:05 á velli 3.

Það er spilað nokkuð þétt þannig að þetta lítur bara vel út8)

Mæting í íþróttahúsið í Árbæ (hjá Árbæjarlaug)
kl. 12:30.

Sjáumst á morgun:d

Þjálfarína

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2009 10:18:32 / kmk

Æfing og Fylkismótið

Fylkismótið er næsta laugardag og það vantar ennþá svör frá nokkrum leikmönnum. Þið verðið að láta vita í síðasta lagi á æfingu í kvöld hvort þið komist eða ekki.

Sjáumst kl. 21:20 í kvöld8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2009 08:57:57 / kmk

Öldungamótsleikirnir

Leikjaplanið fyrir Öldunginn var birt í gær og svona líta leikirnir okkar út:



Tími

Deild

Lið A

Lið B

Umsjón

Völlur

Úrslit

Fimmtudagur 30. apríl 2009

12:30

9. Ö-kvk

Hrafnkell Freysgoði

KMK

Afturelding-3 (7. Ö-kvk)

Brimberg

18:30

9. Ö-kvk

KMK

Álftanes C

þróttur Nes 3 3 (9. Ö-kvk)

Brimberg

20:00

9. Ö-kvk

Völsungur C

KMK

Leiknir B (9. Ö-kvk)

Brimberg

Föstudagur 1. maí 2009

11:45

9. Ö-kvk

Krækjur B

KMK

Eik (1. Öð-kvk)

Fjarðanet Síldarv

14:45

9. Ö-kvk

KMK

þróttur Nes 3 3

Sindri 2 (9. Ö-kvk)

Fjarðanet Síldarv

20:00

9. Ö-kvk

KMK

Sindri 2

Krækjur B (9. Ö-kvk)

Fjarðanet Síldarv

Laugardagur 2. maí 2009

11:00

9. Ö-kvk

Leiknir B

KMK

þróttur Nes 3 3 (9. Ö-kvk)

Fjarðanet Síldarv



Þetta lítur út fyrir að vera hið besta plan og þið fáið að sofa út alla dagana, annað en ég8| Leikirnir mínir með Hamri lenda stundum á sama tíma og ykkar en ég reyni að elta ykkur eftir bestu getu. Ég sendi líka tölvupóst á ykkur þar sem Hamarsplanið fylgir með.

Þjálfarína

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2009 13:04:53 / kmk

Síðasta æfing fyrir páskafrí

Þannig fór um sjóferð þá;) Við unnum eina hrinu á Kjörísmótinu og lentum í neðsta sæti, en við vorum með mjög breytt lið frá fyrri mótum og margar nýjar. Næsta mót á dagskrá er hjá Fylki 18. apríl og hefðum við mjög gott af því að fara á það og hita upp fyrir Öldunginn:o

Það verður æfing hjá okkur í kvöld og verður hún á léttu nótunum, förum aðeins yfir nokkur atriði og svo spilum við mikið. Það væri algjör snilld ef við næðum í tvö lið svo við getum spilað almennilegt blak8)

Þjálfarína

P.s. Leikirnir í Meistaradeildinni í kvöld klárast fyrir klukkan níu þannig að þið náið að klára að horfa á þá fyrir æfinguna;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2009 08:38:06 / kmk

Kjörísmótið - leikjaplan

Við erum í 2. deild og svona lítur leikjaplanið okkar út:

chemas-microsoft-com:xslt" xmlns:user="urn:blak.is">
TímiDeildLið ALið BUmsjónVöllurÚrslit
Laugardagur 4. apríl 2009
09:10 2. Ö-kvk Afturelding-3 KMK 2
09:50 2. Ö-kvk KMK Afturelding-4 Afturelding 1 (1. Ö-kvk) 4
11:10 2. Ö-kvk Fylkir C KMK Álftanes C (2. Ö-kvk) 3
12:30 2. Ö-kvk KMK Álftanes C Afturelding-4 (2. Ö-kvk) 3

Við eigum svo umsjónarleiki í 1. deild karla, kl. 10.30 á velli 4 (Fylkir - Snörtur) og kl. 13.10 á velli 3 (Snörtur - Hamar).

Þið þurfið að vera klárar í upphitun kl. 8.30, sem þýðir að þið þurfið að vera mættar fyrr ef þið ætlið að skipta um föt á staðnum. Fyrsti leikurinn hjá mér er kl. 8.30 þannig að ég hitti ykkur ekki fyrr en að honum loknum. Síðan á ég næsta leik kl. 9.50, alveg eins og þið, þannig að ég næ ekki að fylgja ykkur í hann. Ég næ svo tveimur síðustu leikjunum;)

Bílamálin komast á hreint í dag, ég hringi í ykkur.

Ekki hika við að hafa samband ef eitthvað er óljóst:!:

Kolla þjálfarína
s. 615-1579

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2009 19:58:19 / kmk

Góður æfingaleikur

Það var góð mæting hjá okkur í æfingaleikinn í gær og munaði einum leikmanni að við næðum í tvö lið...kemur bara næst:d Við stóðum okkur með miklum ágætum þótt það sé alltaf eitthvað sem má laga. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hvernig okkur tókst að laga leik okkar með nýja kerfinu. Við erum svo enn að fá nýjar stelpur á æfingar og það tekur tíma fyrir þær að komast inn í hlutina, en þetta lofar góðu hjá okkur8)

Þær sem ætla á Kjörísmótið á laugardaginn eru: Hrafnlaug, Aga, Bogga, Björg, Bára, Heiða, Gunnhildur, Cicci og Guðný.

Leikjaplanið verður tilbúið á morgun og þá fáiði það sent í tölvupósti og eins verður það sett hingað inn. Bílamálin skýrast einnig á morgun.

Ég verð að keppa með Hamri og mun elta ykkur þess á milli.

Ég held að ég sé búin að koma öllu frá mér í bili. Þið skoðið bara bloggið reglulega á morgun til að fylgjast með leikjaplaninu. Þá fáiði í leiðinni að vita hvenær þið eigið að mæta.  

Sjáumst sprækar og ferskar í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi á laugardagsmorgun:d

Þjálfarína

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2009 10:14:47 / kmk

Æfingaleikur og Kjörísmótið

Stelpurnar í Aftureldingu voru að bjóða okkur í heimsókn til sín á morgun til að spila æfingaleik við þær. Mæting í Mosfellsbæ kl. 20.30 og þá tilbúnar í upphitun.

Þær sem hafa síðan meldað sig á Kjörísmótið á laugardaginn eru: Bogga, Gunnhildur, Hrafnlaug, Björg, Bára og Heiða. Það vantar ennþá svör frá fleirum.

Það er búið að setja inn myndbandið frá því í haust á síðuna okkar á Facebook;) Ykkur er velkomið að bæta sjálfar við myndum af liðinu á síðuna.


Sjáumst á morgun í Mosó

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2009 13:25:49 / kmk

Blakkona febrúar, Kjörísmótið og Öldungur

Loksins, loksins, loksins!! Hér með tilkynnist að Björg er blakkona febrúar og eru svörin hennar komin á vinstri kantinn8)




Næsta laugardag (4. apríl.) á þjálfarínan 16 ára fermingarafmæli og í tilefni af því ætlar Hamarsliðið að halda hið árlega Kjörísmót á Selfossi. Gott væri að heyra sem fyrst hvort þið komist eða ekki, annað hvort hér á blogginu eða með tölvupósti.

Það er núna endanlega á hreinu hverjar ætla á Öldungamótið á Seyðisfirði/Egilsstöðum, en það eru: Stína, Fríða, Bára, Björg, Hrafnlaug, Gunnhildur, Bogga, Heiða og Cicci. Þjálfarínan mun elta liðið eins og kostur er. Skráningafresturinn til að tilkynna þátttöku rennur út 1. apríl þannig að eftir það verður ekki hægt að skipta um skoðun. 
Núna stendur yfir forsala á miðum á lokahófið til 1. apríl. Miðinn kostar núna 5.900 kr en mun svo hækka upp í 6.500 kr.

Sjáumst á æfingu á miðvikudaginn:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.03.2009 17:45:22 / kmk

Æfing

Auðvitað er blakæfing í kvöld eins og venjulega og þær sem ekki hafa svarað varðandi öldungamótið eru vinsamlegast beðnar um að vera tilbúnar með svarið í kvöld ;)

Sjáumst svo hressar og kátar kl. 21.20 í íþróttahúsi Árbæjarskóla
Þjálfarínan kemur því miður ekki sökum vinnu en lætur einhverja hressa konu fá æfingaprógram til að við getum nú haldið okkur í rétta forminu ;)

kv. bloggarinn :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2009 19:29:25 / kmk

Blakmót

Jæja stúlkur
Nú fer að styttast í Kjörísmót Hamars. Það er laugardaginn 4.apríl. Hverjar komast á það?
Látið í ykkur heyra og reynum að ná í lið. Alltaf gaman að taka þátt.

Svo er það líka Öldungurinn. Við erum komnar með næstum því 2 lið þurfum samt að kreista helst 2 til viðbótar kannski bara frá öðrum liðum til að vera með okkur. Ef einhver veit um lausa spilara sem langar á öldunginn en er ekki með lið þá látið viðkomandi vita og segja að hafa samband við okkur

Koma svo ...


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2009 18:37:03 / kmk

Sein áminning

Ég veit þessi áminning um æfingu er sein en þið munið þetta hvort eð er.

En minni samt á æfingu í kvöld á sama stað og sama tíma og síðast ;)
(21:20 í Árbæjarskóla)
Ekki er betur vitað en að þjálfarínan mæti galvösk að vanda með fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar.

Sjáumst á eftir 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Gestir
Í dag:  7  Alls: 23061
Lokahófið
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 972 dögum
Lokahófið